{"name":"Jónas Jónasson frá Hrafnagili","title":"Jónas Jónasson frá Hrafnagili","id":13789,"slug":"jonas-jonasson-fra-hrafnagili","url":"https://www.guitarparty.com/api/v3/core/authors/13789/?format=json","bio_short":"Prestur og kennari\r\nVeturinn eftir að hann útskrifaðist var hann heimiliskennari hjá Eggert Briem, sýslumanni á Reynistað. Haustið 1881 gekk hann í prestaskólann og útskrifaðist þaðan eftir tvö ár mjög vel að sér í þeim fræðum sem þar voru kennd og með góðum vitnisburði. Sama haustið sem hann útskrifaðist var honum veitt Stóruvallaprestakall í Rangárvallasýslu og flutti þá þangað. Vorið 1884 kvæntist hann ekkju, Þórunni Stefánsdóttur. Um haustið 1884 voru honum veitt Grundarþing í Eyjafirði, og flutti hann þangað vorið eftir. Þjónaði hann því brauði í 25 ár eða frá 1885 til 1910. Prófastur var hann í Eyjafjarðar-prófastsdæmi 1897—1908.\r\n\r\nÁrið 1905 varð hann tímakennari við gagnfræðaskólann á Akureyri og var kennari þar við skólann tólf ár, fjögur fyrstu árin sem tímakennari en 8 síðari árin sem fastur kennari. Vorið 1917 kvaddi hann skólann við skólauppsögn en hann treysti sér þá ekki til að halda lengur kennaraembætti fyrir vanheilsu sakir. Jafnframt kennarastarfinu þjónaði hann Grundarþingum þangað til hann fékk fasta veitingu fyrir kennaraembættinu við gagnfræðaskólann 1910. Haustið 1917 fluttu þau hjón að Útskálum til séra Friðriks sonar síns. Dvöldu þau þar frameftir vetrinum og lá séra Jónas rúmfastur mestan tímann. Síðari hluta vetrar fluttu þau hjónin til Reykjavíkur, ef vera mætti að hann gæti fengið þar lækningu. Virtist um tíma að svo mundi verða en brátt sótti aftur í sama farið og elnaði sóttina því meir sem lengur leið þar til hann andaðist á heimili mágs síns, Guðmundar Stefánssonar, þar sem þau hjónin höfðu dvalið.","artist_img":"//guitarparty.overcastcdn.com/images/JJ-fra-hrafagili.2e16d0ba.fill-1200x675-c100.format-jpeg.jpg","songs":[{"id":254,"title":"Siggi var úti","url":"https://www.guitarparty.com/songs/siggi-var-uti/"}]}