[E]Hún er silki og [B]stál.
[E]Hún er stórsjór og [B]bál.
[E]Hún er happ mitt í [C#m]hendi.
[F#m]Hún er hjarta míns [B]mál.
[E]Þegar heimur og [B]drótt
[E]höfðu loks um sig [B]hljótt,
[C#m]í fannfergi [F#m]hugans
ég [A]fann hana í [E]nótt.
[E]Það var dimmt, það var [B]dögg
[E]og í dreyranum [B]lögg.
[E]En ég fann hvernig [C#m]hjartað
[F#m]sló högg eftir [B]högg.
[E]Þar sem áður var [B]tóm
[E]eru nú aðeins [B]blóm.
[C#m]Í kuldanum [F#m]ástin
hún [A]kvað upp sinn [E]dóm.
[B]Það er ólýsan[E]legt,
[B]já og alls engu líkt,
- þá [A]sjaldan menn [E]komast
í [F#m]tæri við [B]slíkt -
hver[B]su öflug hún [E]er,
hver[B]su hreint ótrú[E]leg.
[C#m]Hvað hún örvar og [F#m]sefar
í senn. Trú[A]ðu [E]mér.
[E]Það var hvasst, úfinn [B]sær.
[E]Það var nýfallinn [B]snær.
[E]Þó var innra með [C#m]mér
[F#m]aðeins andvari [B]vær.
[E]Já, ég vissi sem [B]var.
[E]Og ég skynjaði [B]þar
[C#m]í mjöllinni [F#m]hitann
sem [A]með sér hún [E]bar.
[C#m]Dag eftir dag eftir dag
eru óteljandi [Amaj7]sálir sárar [Bm]víst.
[C#m]Dag eftir [B]dag eftir [A]dag
hverfur [E]sól. En síðan [F#m]styttir upp,
[A]styttir upp á [E]ný.
[E]Ný er dagur á [B]ný.
[E]En í kvöld aftur [B]sný
[E]ég til fundar við [C#m]þig
[F#m]þar í rökkrinu, [B]því
[E]þegar dagur og [B]nótt
[E]höfðu loks um sig [B]hljótt
[C#m]í fannfergi [F#m]hugans
ég [A]fann hana í [E]nótt.
[C#m]Í fannfergi [F#m]hugans
ég [A]fann þig í [E]nótt.
Hún er silki og stál.
Hún er stórsjór og bál.
Hún er happ mitt í hendi.
Hún er hjarta míns mál.
Þegar heimur og drótt
höfðu loks um sig hljótt,
í fannfergi hugans
ég fann hana í nótt.
Það var dimmt, það var dögg
og í dreyranum lögg.
En ég fann hvernig hjartað
sló högg eftir högg.
Þar sem áður var tóm
eru nú aðeins blóm.
Í kuldanum ástin
hún kvað upp sinn dóm.
Það er ólýsanlegt,
já og alls engu líkt,
- þá sjaldan menn komast
í tæri við slíkt -
hversu öflug hún er,
hversu hreint ótrúleg.
Hvað hún örvar og sefar
í senn. Trúðu mér.
Það var hvasst, úfinn sær.
Það var nýfallinn snær.
Þó var innra með mér
aðeins andvari vær.
Já, ég vissi sem var.
Og ég skynjaði þar
í mjöllinni hitann
sem með sér hún bar.
Dag eftir dag eftir dag
eru óteljandi sálir sárar víst.
Dag eftir dag eftir dag
hverfur sól. En síðan styttir upp,
styttir upp á ný.
Ný er dagur á ný.
En í kvöld aftur sný
ég til fundar við þig
þar í rökkrinu, því
þegar dagur og nótt
höfðu loks um sig hljótt
í fannfergi hugans
ég fann hana í nótt.
Í fannfergi hugans
ég fann þig í nótt.