[G7]
Undir [C]bláhimni [F]blíðsumars [C]nætur
barstu' í [Am]arma mér [D7]rósfagra [G]mey. [G7]
Þar sem [C]döggin í [F]grasinu [C]grætur,
gárast [G]tjörnin í [G7]suðrænum [C]þey. [C7]
Eg var [F]snortinn af yndisleik [C]þínum,
ástar[Am]þráin er [D7]vonunum [G]felld. [G7]
Þú ert [C]ljósblik á [F]lífshimni [C]mínum,
þú er [G]ljóð mitt og [G7]stjarna í [C]kveld. [G7]
Eg vil [C]dansa við [F]þig, meðan [C]dunar
þetta [Am]draumblíða [E7]lag, sem eg [G]ann. [G7]
Meðan [C]fjörið í [F]æðunum [C]funar
af [G]fögnuði [G7]hjartans, er [C]brann. [C7]
Að dansa [F]dátt, það er [C]gaman,
uns [Am]dagur í [D7]austrinu [G]rís. [G7]
Þá [C]leiðumst við [F]syngjandi [C]saman
út í [G]sumarsins [G7]para [C]dís.
Undir bláhimni blíðsumars nætur
barstu' í arma mér rósfagra mey.
Þar sem döggin í grasinu grætur,
gárast tjörnin í suðrænum þey.
Eg var snortinn af yndisleik þínum,
ástarþráin er vonunum felld.
Þú ert ljósblik á lífshimni mínum,
þú er ljóð mitt og stjarna í kveld.
Eg vil dansa við þig, meðan dunar
þetta draumblíða lag, sem eg ann.
Meðan fjörið í æðunum funar
af fögnuði hjartans, er brann.
Að dansa dátt, það er gaman,
uns dagur í austrinu rís.
Þá leiðumst við syngjandi saman
út í sumarsins paradís.