[Gm] [F] [Cm]
[Gm] [F] [Cm]
[Gm]Jafnvel þótt himininn [F]dragi gluggatjöld sín [Cm]frá,
liggur [Gm]dáleiðandi þokan [F]glugga þínum [Cm]á.
[F]Himininn brotnar í [E]ljóðum, nakið [Am]undur, [Gm]
[F]kristaldýr í garðinum [E]molnar [Am]sundur. [Gm]
[Gm]Hálfluktum augum [F]starði ég [Cm]inn,
[Gm]rafmagnað ljósið [F]strauk mína [Cm]kinn
[F]Hvíslandi þögnin [E]reis úr dvalanum í [Am]gær, [Gm]
[F]bergmál vorsins [E]í garðinum hennar [Am]grær. [Gm]
[Gm]Á heitum kvöldum hún [F]kallar mig sinn [Cm]vin,
[Gm]með augu eins og demanta, sem [F]lýsa upp himin[Cm]inn.
[F]Hún dansar fram á nætur í [E]tunglsljósinu, [Am]tryllt, [Gm]
[F]gulli roðið hár hennar [E]þyrlast úfið, [Am]villt. O-o-o-[Gm]o-ó-ó
[Gm] [F] [Cm]
[Gm] [F] [Cm]
[F] [E] [Am] [Gm]
[F] [E] [Am] [Gm]
[Gm]Garðinn hennar vöktuðu [F]sex japanskir víga[Cm]menn,
[Gm]sem aldrei fóru af verðinum, nema [F]einn og einn í [Cm]senn.
[F]Ef þú vilt hana gleðja skaltu [E]senda á morgun [Am]blóm, [Gm]
[F]hún hefur stærra hjarta, dýpri augu, en [E]páfinn í [Am]Róm. [Gm]
[Gm]Jafnvel þótt himininn [F]dragi gluggatjöl sín [Cm]frá,
[Gm]mun dáleiðandi [F]þokan liggja glugga þínum [Cm]á.
[F]Augu þín sljóvga líkt og þú [E]rýnir í svartan [Am]hyl, [Gm]
[F]milli þín og drauma hennar liggur [E]fingurbreytt [Am]bil. O-o-o-[Gm]o-ó-ó
[Gm] [F] [Cm]
[Gm] [F] [Cm]
[F] [E] [Am] [Gm]
[F] [E] [Am] [Gm]
Jafnvel þótt himininn dragi gluggatjöld sín frá,
liggur dáleiðandi þokan glugga þínum á.
Himininn brotnar í ljóðum, nakið undur,
kristaldýr í garðinum molnar sundur.
Hálfluktum augum starði ég inn,
rafmagnað ljósið strauk mína kinn
Hvíslandi þögnin reis úr dvalanum í gær,
bergmál vorsins í garðinum hennar grær.
Á heitum kvöldum hún kallar mig sinn vin,
með augu eins og demanta, sem lýsa upp himininn.
Hún dansar fram á nætur í tunglsljósinu, tryllt,
gulli roðið hár hennar þyrlast úfið, villt. O-o-o-o-ó-ó
Garðinn hennar vöktuðu sex japanskir vígamenn,
sem aldrei fóru af verðinum, nema einn og einn í senn.
Ef þú vilt hana gleðja skaltu senda á morgun blóm,
hún hefur stærra hjarta, dýpri augu, en páfinn í Róm.
Jafnvel þótt himininn dragi gluggatjöl sín frá,
mun dáleiðandi þokan liggja glugga þínum á.
Augu þín sljóvga líkt og þú rýnir í svartan hyl,
milli þín og drauma hennar liggur fingurbreytt bil. O-o-o-o-ó-ó