Með gítarinn í hendi
um partýið ég sé
sama hvar ég lendi
spila eingöngu í G.
Nóttin löngu liðin,
pælum ekki í því
einhvern tíma seinna
höldum heim á ný .
Höldum heim á ný,
höldum heim á ný.
Alltaf sama sagan
sama hvar ég bý
yndislegt er ávallt
að koma heim á ný.
Kominn heim á ný,
kominn heim á ný.
með gítarinn í hendi
um partýið ég sé
sama hvar ég lendi
spila eingöngu í G.
þó fjörið aldrei endi
þá tek ég stundum frí
á sama tíma að ári
held ég heim á ný.
Höldum heim á ný
höldum heim á ný.
lalala.......
Höldum heim á ný,
höldum heim á ný.