Ástgeir Kristinn Ólafsson, betur þekktur sem Ási í Bæ fæddist þann 27. febrúar 1914. Móðir hans var Kristín Jónsdóttir og faðir Ólafur Ástgeirsson, sem var þekktur bátasmiður í Eyjum, og bjuggu þau að Litlabæ í Vestmannaeyjum. Ási var landskunnur texta- og lagasmiður, vísnasöngvari og afkastamikill rithöfundur og lét mikið að sér kveða en þó sérstaklega eftir hann lét af sjómennsku. ...